Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

08. september 2010

Landsþing Landssambands sjálfstæðiskvenna - 2. október 2010

Landsþing Landssambands sjálfstæðiskvenna verður haldið í Hlégarði Mosfellsbæ, laugardaginn 2. október 2010.  Þingið hefst kl. 9.30 og stendur til 16.15.  Eftir þingið verður móttaka í Gljúfrasteini á vegum sjálfstæðiskvenna í Mosfellsbæ og eru þær með ýmislegt annað skemmtilegt í pokahorninu.

Á þessu þingi verður fjallað um þau mál sem mest brennur á:

Atvinnumálin og skuldavanda heimilanna.

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins Ólöf Nordal mun halda aðalræðu þingsins

17. júní 2010

Endurkjör stjórnar á aðalfundi Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Góð mæting var á aðalfund Sjálfstæðisfélags Garðabæjar sem haldinn var mánudaginn 14. júní.  Á fundinum var Sigríður Hulda Jónsdóttir endurkjörin sem formaður stjórnar Sjálfstæðisfélags Garðabæjar og einnig voru aðal- og varamenn í stjórn endurkjörnir.  Skýrsla stjórnar og ársreikningur voru kynnt á fundinum en hægt er að skoða ársskýrsluna með því að smella hér.

Smelltu hér til að skoða myndir frá aðalfundinum.

08. júní 2010

Félagsfundur miðvikudaginn 9. júní kl.18.00

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, Sjálfstæðisfélag Garðabæjar og Huginn f.u.s. í Garðabæ halda sameiginlegan félagsfund í félagsheimili Sjálfstæðisfélags Garðabæjar að Garðatorgi 7, miðvikudaginn 9. júní nk. kl. 18.00

Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á 39. landsfund Sjálfstæðisflokksins sem verður haldinn dagana 25. og 26. júní nk.

Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ
Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
Stjórn Hugins f.u.s. Garðabæ
03. júní 2010

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar

Mánudaginn 14. júní verður haldinn aðlafundur Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.  Fundurinn hefst kl. 17.30 í félagsheimili Sjálfstæðisfélagsins að Garðatorgi 7, Garðabæ.

Dagskrá:
Hefðbundin aðalfundarstörf.
Önnur mál.

Stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar