Sjálfstæðisfélag Garðabæjar
01. mars 2010 | 09:33:38
Nýr leikskóli í Akrahverfi
Lögð hefur verið áherstla á að börn í Garðabæ komist í leikskóla þegar þau ná 18 mánaða aldri og hefur bærinn verið í forystu sveitarafélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað þetta varðar. Í Akrahverfi hefur barnafjölskyldum fjölgað meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bæjarvöld hafa ákveðið að bregðast við þessu og flýta byggingu leikskóla í hverfinu. Ný þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir því að hönnun og útboð fari fram á þessu ári og að nýr leikskóli í Akrahverfi taki til starfa á næsta ári. Leikskólinn verður byggður á stórri og fallegri lóð við Línakur.
