Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

24. febrúar 2010 | 21:39:54

Frá Kjörnefnd

Kjörnefnd Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, sem kosin var á fundi fulltrúaráðsins 7. janúar sl. er nú að störfum við að vinna úr niðurstöðu prófkjörsins sem fram fór 6. febrúar sl.
Miðar vinna kjörnefndar að því að klára tilnefningar á framboðslistann, m.a. með samtölum við frambjóðendur í prófkjörinu og fleiri aðila
Er stefnt að því að þessari vinnu nefndarinnar ljúki nú um mánaðamótin og að óbreyttu er stefnt að því að kynna framboðslista Sjálfstæðisflokksins, vegna bæjarstjórnarkosninganna 29. maí, á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í annarri viku marsmánaðar. Sá fundur mun auglýstur sérstaklega

f.h. kjörnefndar,
Lúðvík Örn Steinarsson formaður