Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

05. febrúar 2010 | 11:09:45

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir gefur kost á sér í 5. sæti á lista í prófkjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ laugardaginn 6. febrúar.

Ásta Hrafnhildur starfar sem íþróttafulltrúi fyrir ungmennafélagið Stjörnuna í Garðabæ, en því starfi hefur hún gengt frá júní 2007.  Hún er með B.Ed próf frá Kennaraháskóla Íslands og kenndi við Garðaskóla í Garðabæ áður en hún tók til starfa fyrir Stjörnuna. Áður starfaði hún sem handritshöfundur og þáttastjórnandi Stundarinnar okkar í Sjónvarpinu og var þar í  góðum félagsskap kattarins Kela. Að auki hefur hún unnið margvísleg verkefni fyrir ólíka aðila, starfaði meðal annars sem verkefnastjóri fyrir verkefnið Verndum bernskuna sem var á vegum biskpusstofu, umboðsmanns barna, forsætisráðuneytis og fleiri hagsmunaaðila.

Ásta hefur að auki sinnt félagsmálum af miklum krafti  og var á yngri árum viðloðandi MORFÍS og sat meðal annars í stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í HÍ.  Að auki hefur hún setið í stjórnum foreldrafélaga og verið virkur sjálfboðaliði í Stjörnunni.

Ásta Hrafnhildur er í sambúð með Þorsteini Rafni Johnsen, framkvæmdastjóra, en hann er einnig uppalinn Garðbæingur. Þau eiga samtals þrjá syni, Þorstein Valdimar 5 ára, Gunnar Bergþór 7 ára og Garðar Benedikt 17 ára.

„Ég er uppalinn Garðbæingur og hef alið manninn að mestu leyti hér. Ég ann bæjarfélaginu og velferð þess, ég vil hag þess og íbúanna sem mestan.
Ég tel að ég eigi erindi í bæjarmálin þar sem þörf er á breidd og ólíkum röddum.
Hagsmunir ungs fólks og barnafólks eru mér hugleikinn og legg ég áherslu á að verja grunnþjónustan og skerða ekki um of lífsgæði í Garðabæ, því er áframhaldandi stöðugleiki í fjármálum bæjarins sjálfsögð krafa.  Mér er jafnframt umhugað um ævikvöld eldri Garðbæinga sem hafa margir hverjir verið mér góðar fyrirmyndir á lífsleiðinni. Ég tel mig vera öflugan liðsmann og góðan málsvara þessara hópa og því býð ég mig fram til starfa sem nýjan valkost í forystusveit. Ég óska eftir stuðningi í 5. sæti á lista sjálfstæðismanna í vor.“

Ásta Hrafnhildur