Dagmar Elín Sigurðardóttir sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Ágæti Garðbæingur,
Við sveitarstjórnarkosningarnar í vor verður litið til þess hver endurnýjun flokkana hefur verið frá síðustu bæjarstjórnarkosningum. Það er eindregin skoðun mín að reglulega þurfi nýir fulltrúar bæjarbúa að koma til setu í bæjarstjórn. Því hef ég ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins til þess að taka þátt í þeirri endurnýjun sem nauðsynleg er.
Ég hef búið í Garðabæ frá 1982 og fann fljótt að Garðabær er góður staður til að ala upp börn. Nálægðin við náttúruna skapar okkur bæjarbúum lífsgæði sem eru mikils virði. Þess vegna vil ég vernda náttúruna með hóflegri nýtingu landsins enda felst auður Garðabæjar í náttúrunni og íbúunum. Skipulagsmál eru mér því hugleikin þar sem huga þarf að samspili náttúru og byggðar og jafnframt sýna íbúum tillitssemi.
Tryggja þarf að ekki sé gengið á dýrmætt landsvæði og varast ber að glannaleg auglýsingaskilti einkenni bæinn okkar. Hugmyndir um nýjan miðbæ þurfa augljóslega endurskoðunar við í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu. Á komandi árum þarf í þeim málum að gæta hófsemi og ráðdeild ásamt tillitssemi við þá íbúa sem búa nálægt framkvæmdasvæðum.
Það þarf frekari úrbætur í húsnæðismálum eldri borgara og tryggja þeim viðunandi húsnæði á eðlilegu verði. Það á einnig að vera unnt fyrir þann hóp að geta áfram búið í sérbýli ef aðstæður eru fyrir hendi. Hraða þarf sem mest uppbyggingu á fyrirhuguðu Hjúkrunarheimili enda aðstaðan sem nú er boðið upp á ófullnægjandi. Unga fólkið hefur ennfremur orðið útundan og það vantar íbúðir fyrir ungt fólk sem vill geta hafið búskap í heimabæ sínum. Það hafa ekki verið í bænum í boði íbúðir á viðráðanlegu verði fyrir þennan aldurshóp, né heldur hefur verið nægjanlegt lóðaframboð á skikkanlegu verði. Á þessu þarf að taka og tryggja að ungt fólk geti eignast íbúðir í Garðabæ á eðlilegu verði.
Félagsmál hafa verið mér hugleikin og hef ég tekið þátt í margvíslegum félagsstörfum, var m.a. formaður Kvenfélags Garðabæjar í nokkur ár. Mínar áherslur í komandi kosningum eru: Þjónusta við eldri borgara, umhverfismál, samspil náttúru og byggðar, skipulagsmál, íbúðir fyrir ungt fólk og fjölskyldumál í víðasta skilningi. Ef þetta eru mál sem þér finnst skipta máli þá eigum við samleið og ég bið þig um stuðning í 2. sætið í prófkjörinu.
Dagmar Elín Sigurðardóttir 2. sæti prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Smellið hér til að skoða heimasíðu Dagmar
