Þorvaldur Finnbjörnsson gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjörinu 6. febrúar n.k.
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu 6. febrúar. Það virðist ætla að verða erfiðara en oft áður að átta sig á mögulegri útkomu sveitastjórnarkosninganna í vor. Því er mikilvægt að fram komi listi fólks með víðtæka þekkingu og reynslu en jafnframt frjóar hugmyndir um hvernig eigi að gera hlutina. Því er vonandi að vel takist til í prófkjörinu. En reynslan úr nágrannasveitarfélögunum hefur sýnt okkur að erfitt er að spá fyrir um slík úrslit. Þó ég sé að bjóða fram í fyrsta sinn tel ég að ég hafi mikið fram að færa til hagsbóta fyrir Garðabæ og íbúa bæjarins.
Ég og konan mín, Anna Árnadóttir höfum búið í bænum frá 1988 en ég bjó reyndar hér sem unglingur í nokkur ár, með foreldrum mínum. Því tel ég mig þekkja vel til málefna bæjarins og bæjarbúa. Hér höfum við hjónin alið upp börnin okkar fjögur, sem reyndar eru flest flutt að heiman. Yngsta dóttir okkar Halldóra, býr hjá okkur, en hún stundar nám við Háskóla Íslands. Elsta dóttirin Theódóra býr og starfar í Malmö í Svíþjóð ásamt fjölskildu sinni. Kristín dóttir okkar er framkvæmdastjóri í nýsköpunarfyrirtæki í Reykjavík og Finnbjörn stundar nám í tölvunarfræði.
Á þessum tíma mikilla breytinga víðast hvar í samfélaginu þurfum við að sjá að jafnframt eru mörg tækifæri fyrir hendi. Til þess að nýta þessi tækifæri sem best þurfum við að beita nýrri hugsun án þess þó að hverfa frá þeim stöðugleika sem við höfum skapað í gegnum árin hér í bænum. Við bæjarbúar fögnum því væntanlega flestir hversu vel hefur tekist til í stjórn bæjarmála. Garðabær, eitt fárra sveitarfélaga, býr við viðunandi stöðu, þrátt fyrir allt. Þetta má að miklu leiti þakka stjórn meirihlutans á síðustu árum en vissulega einnig hæfu starfsfólki bæjarins, sem við metum mikils.
Ekki er útilokað að enn betur þurfi að halda á málum á komandi árum. Beita þarf skynsamlegum aðferðum við stjórnun bæjarins. Vinna þarf að málefnum bæjarins og íbúana á skilvirkan hátt þar sem þeim verður gert mögulegt að hafa bein áhrif á ákvarðanatöku a.m.k. í stærri málum. Íbúalýðræði eins og það kemur fram í almennri umræðu er vandmeðfarið en samt mikilvægur þáttur í nútíma samfélagi. Bæjarstjórn verður að geta reitt sig á skilaboð frá þverskurði af íbúum en ekki einungis þeim sem hafa brennandi áhuga á tilteknum málum.
Atvinnumál í bænum eru með ágætum þó þar megi gera betur. Góður hópur fyrirtækja eru í Moldahrauni og í Kauptúni en einnig hér og hvar í bænum. Það eru margir kostir við að hafa vel samansett atvinnulíf í bæjarfélagi eins og Garðabæ þó atvinnusvæðið sé sameiginlegt um höfuðborgarsvæðið allt. Bærinn hefur ekki miklar beinar tekjur af slíkri starfsemi en engu síður er mikilvægt að tengja saman atvinnulíf og íbúabyggð því slík blanda jákvæð fyrir jafnvægi í bænum.
Ástæðan fyrir því að ég sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu nú er að ég tel mikilvægt að ný hugsun komi til við stjórnun bæjarins. Mikilvægt er að breyta til og endurskoða gildin og beita nýjum aðferðum eftir þörfum. Það má þó vissulega ekki gleyma því sem vel er gert. Því þarf þessa blöndun á margskonar reynslu og þekkingu á listann.
Mér þætti vænt um að sjá sem flesta á prófkjörsdaginn, laugardaginn 6. febrúar n.k.
