Traust og heiðarleiki
Í aðdraganda síðasta prófkjörs árið 2005 hafði ég á orði: ,, Til þess að ná árangri þarf að hugsa stórt og hafa kjark til að framkvæma”. Þetta á vel við enn í dag og eru meðal annars ástæða þess að ég býð fram krafta mína í prófkjörinu. Ég sækist eftir 1. sætinu og óska um leið eftir því að fá tækifæri til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Það er gríðarlega mikilvægt að mynda öflugan framboðslista fyrir komandi kosningar. Styrkur okkar mun felast í samheldnum og vinnusömum hópi sem ég er tilbúin til að leiða til sigurs í kosningunum í vor.
Traust og heiðarleiki eru einkunnarorð mín enda tel ég þau endurspegli þau vinnubrögð sem ég hef tileinkað mér í mínu pólitíska starfi og hvarvetna er kallað eftir í þjóðfélaginu í dag. Með aukinni kröfu frá samfélaginu um opna og gegnsæja stjórnsýslu eigum við að setja fram skýr gildi í samskiptum milli íbúa og stjórnsýslunnar. Því er mikilvægt að mótaðar verði siðareglur fyrir bæjarfulltrúa, þannig að störf og háttsemi þeirra verði hafin yfir allan vafa. Í siðareglunum skal fjallað um starfsskyldur kjörinna fulltrúa, valdamörk, hagsmunaárekstra, gjafir, fríðindi og trúnað.
Stjórnmál eru mitt aðaláhugamál, það er eðlilegt að hver og einn kosti sjálfur sín áhugamál hvort sem það er golf, laxveiði, skotveiði eða annað.
Í síðasta prófkjöri þá varði ég hluta af mínu sparifé til þess að kosta baráttuna og er um leið mjög stoltur af því hve vel tókst til en prófkjörið kostaði mig rúmlega eina milljón króna. Á þeim tíma komu nokkrir aðilar að máli við mig og vildu styðja mig með fjárframlögum en ég ákvað að afþakka öll slík boð. Ástæða þess var að ég vildi vera algjörlega óháður öllum hagsmunaaðilum að prófkjöri loknu og vera aðeins skuldbundinn bæjarbúum og minni eigin samvisku og sannfæringu. Með það að leiðarljósi hef ég starfað í þágu bæjarbúa á yfirstandandi kjörtímabili.
Ég mun leggja mig fram við að komandi prófkjör verði málefnalegt og skemmtilegt auk þess sem ég mun viðhafa heiðarleg vinnubrögð.
Að lokum minni ég á heimasíðu mína www.pall.is en þar mun ég setja daglega inn fréttir þannig að bæjarbúum gefist tækifæri til að fylgjast með framboði mínu, þar má einnig finna þær áherslur sem ég set á oddinn í komandi prófkjöri. Starfsstöð mín verður í bílskúrnum á heimili fjölskyldunnar að Bæjargili 89. Þangað eru allir bæjarbúar velkomnir á meðan húsrúm leyfir, heitt á könnunni frá kl. 17.00 – 21.00 fram að kjördegi þann 6. febrúar nk.
Páll Hilmarsson frambjóðandi í fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna 6. febrúar 2010.
