Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

31. janúar 2010 | 16:33:15

Ragnýju í 2.-3. sætið

Kæru Garðbæingar

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til starfa fyrir ykkur og bæjarfélagið okkar Garðabæ.

Ég hef starfað sem varabæjarfulltrúi í bráðum 8 ár og hefur það verið mér dýrmætur skóli. Seta í byggingarnefnd á árunum 2002-2006 gerði það að verkum að ég sem nýr íbúi í Garðabæ kynntist bænum vel og þeim reglum sem mikilvægt er að uppfylla í byggingarmálum. Árið 2006 tók við seta í skipulagsnefnd. Vel skipulagt sveitarfélag skiptir bæjarbúa miklu varðandi lífsgæði og því hefur verið mér dýrmætt að fá að koma að þeirri vinnu. Ég hef í störfum mínum í skipulagsmálum ávallt lagt mig fram um að hlusta á öll sjónarmið og notið þeirrar gæfu að til mín hefur verið leitað vegna mála sem eru til umræðu í nefndinni. Þetta samspil íbúanna og bæjarstjórnar er lykill að því að geta þjónað vel sem fulltrúi bæjarbúa og vil ég leggja mig fram um það.

Málefni barna og ungmenna eru mín hjartans mál. Jafnt forvarna-, skóla- og tómstundamál. Ég hef frá 2002 verið formaður forvarnanefndar. Þar sem forvarnir eru þverfaglegur málaflokkur hef ég haft tækifæri til að vinna mikið með skólum, foreldrafélögum, íþróttafélögum, tómstundafélögum og svo mætti lengi telja. Einnig að stýra gerð forvarnastefnu fyrir bæinn og koma af stað mörgum forvarnamálefnum sem hafa styrkt samfélagið okkar.

Ástæða þess að mig langar nú að fá tækifæri til að starfa sem bæjarfulltrúi er að fá að leggja mitt af mörkum til þess að byggja upp samfélag sem hlúir að öllum og kemur til móts við mismunandi þarfir. Leiðarljós forvarnastefnu Garðabæjar er að öll börn skuli fá tækifæri til að blómstra og vil ég útvíkka það leiðarljós og gera að mínu baráttumáli að allir bæjarbúar fái tækifæri til að blómstra, jafnt ungir sem aldnir og þar á milli. Til að svo verði þarf að hlusta vel eftir ykkar röddum og því vil ég hvetja ykkur til að hafa samband við mig og ræða ykkar áherslur.

Komist ég að sem bæjarfulltrúi mun ég leggja mig alla fram um að hafa réttsýni ávallt að leiðarljósi í ákvarðanatöku, hlusta á rök með og á móti og taka málefnalega afstöðu. Einnig mun ég berjast fyrir að nú þegar samdráttur blasir við í samfélagi okkar, verði forgangsraðað vel. Þau mál sem standa okkur flestum næst eru hagur fjölskyldu okkar og öryggi og mun ég berjast fyrir því. Hagsýni í fjármálum bæjarins skiptir máli því hún skilar sér til allra en einnig þarf að tryggja að skera ekki niður í mikilvægum velferðarmálaflokkum.

Veldu baráttukonu í bæjarstjórn

Ég bið um þinn stuðning í 2. eða 3. sætið

Virðingarfyllst,

Ragný Þóra Guðjohnsen

Sjá nánar um áherslu Ragnýjar á www.ragny.is