Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

05. febrúar 2010 | 11:10:00

Upplýsingar um prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og kynning á frambjóðendum

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fer fram 6. febrúar
Kjörfundur verður haldinn laugardaginn 6. febrúar frá kl. 09.00 til kl. 18.00 í félagsheimili Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ að Garðatorgi 7. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum fullgildum félögum sjálfstæðisfélaga Garðabæjar. Einnig þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins sem munu eiga kosningarétt í Garðabæ við kosningarnar 29. maí 2010 og undirritað hafa beiðni um inntöku í sjálfstæðisfélög Garðabæjar. Munið að hafa með ykkur skilríki.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins i Valhöll. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.  Einnig verður hægt að kjósa utankjörstaðar á skrifstofu sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ að Garðatorgi 7 á virkum dögum frá kl. 17 til kl. 19.

Smellið á lesa meira til að fá nánari upplýsingar um prófkjörið og þáttakendur í því.

Hverjir mega taka þátt í prófkjörinu?
a) Allir fullgildir meðlimir sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ sem þar eru búsettir.
b) Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í Garðabæ við kosningarnar 29. maí nk. og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Garðabæ fyrir lok kjörfundar.

 

Hvernig á að kjósa?
Kjósa skal 7 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 7 fyrir fram nöfn frambjóðenda. Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem óskað er að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, talan 2 sett fyrir framan nafn þess sem menn vilja að hljóti annað sætið í prófkjörinu, talan 3 fyrir framan nafn þess sem menn vilja að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og þannig koll af kolli þar til kosnir hafa verið 7 frambjóðendur.

Þátttakendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ 6. febrúar næstkomandi:

Áslaug Hulda Jónsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og kennari
Sturla Þorsteinsson, grunnskólakennari
Jóna Sæmundsdóttir, lífeindafræðingur
Dagmar Elín Sigurðardóttir, bókari
Ragný Þóra Guðjohnsen, lögfræðingur og doktorsnemi
Erling Ásgeirsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson, lögfræðingur og forstöðumaður
Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir, íþróttafulltrúi
Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðsstjóri
Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Björn Már Ólafsson, nemi

Kjörnefnd Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna