Sturla Þorsteinsson sækist eftir 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ
Sturla Þorsteinsson gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ fyrir sveitarstjórnakosningarnar í vor sem fram fer 6. febrúar nk.
„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Ég tel mig geta lagt mitt að mörkum fyrir bæjarbúa á komandi kjörtímabili. Mikilvægt er á tímum sem þessum að sú grunneining sem fjölskyldan er skuli sett í öndvegi sem aldrei fyrr. Áfram skal unnið að metnaðarfullu íþrótta-, tónlistar- og æskulýðsstarfi og tryggja þarf áframhaldandi gæðastarf í leik- og grunnskólum bæjarins. Með styrkri fjármálastjórn verður öllum álögum á íbúa haldið í lágmarki og grunnþjónusta við bæjarbúa tryggð,“ segir Sturla.
Sturla hefur starfað sem kennari í Garðaskóla í Garðabæ frá árinu 1987. Áður kenndi hann í Réttarholtsskóla, eða frá árinu 1973. Samhliða kennslu í Garðabæ starfaði hann í hlutastarfi við félagsmiðstöðina Garðalund frá 1987 til 1997. Hann var forstöðumaður vinnuskóla Garðabæjar 1989 - 1998. Einnig starfaði hann samhliða kennslu sem námsráðgjafi við Garðaskóla 1990 - 1997.
Sturla hefur setið sem fulltrúi kennari í skólanefnd grunnskóla Garðabæjar, setið í stjórn og gegnt formannsembætti í barna – og unglingaráði Stjörnunnar og verið formaður í kennarafélagi Reykjaness. Sturla situr nú í svæðisráði málefna fatlaðra á Reykjanesi, er varaformaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar og er varamaður í sóknarnefnd Garðasóknar.
Sturla var annar varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi kjörtímabilið 1999 - 2003 og tók sæti á Alþingi í þrjá mánuði sem varaþingmaður. Hann hefur verið í stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar og sat fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í fjölskylduráði Garðabæjar kjörtímabilið 2002 - 2006.
Sturla hafnaði í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2006. Hann hefur verið varabæjarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili og tekið virkan þátt í starfi meirihlutans. Þá hefurSturla verið formaður fjölskylduráðs Garðabæjar á yfirstandandi kjörtímabili.
Sturla er kvæntur Ingibjörgu Haraldsdóttir og eiga þau þrjú börn.
